|
23. �?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?�š�?�??�?¡ra afm�?
Fyrir 1794 dögum
|
06.04.2008 01:33:48 / hannastella
Góða kvöldið.
Ég neyðist til að blogga, heilabúið er orðið of fullt miðað við stærð 
Allavega er margt sem fer í gegnum höfuðið á mér þessa dagana..vikurnar.
Eitt af því er blessað Tourette-ið mitt. Tourette-ið sem stjórnar lífi mínu alltof mikið. Það stjórnar ekki bara hreyfingum mínum heldur líka skapinu mínu. Ég stórefast um að einhver skilji hvað ég er að ganga í gegnum, og ég get ekki ætlast til þess að einhver skilji mig. Svo lengi sem fólk skilgreinir mig ekki sem "aumingja sem nennir ekki að vinna" þá er ég sátt. Málið er nefnilega það að ég ætlast ekki mikils af fólki, bara ef það getur tekið tillit til mín og ekki dæmt mig.. þá er ég sátt. Mig virkilega langar að geta unnið og séð fyrir mér og dóttur minni algjörlega uppá eigin spýtur. En ég get það ekki núna, EN ég mun geta það einn góðan veðurdag þegar ég hef sigrað TS
Í kringum fólk þá lít ég út fyrir að vera heilbrigð ung kona, enda bæli ég kækina niður í margmenni. En þeir koma þá bara sterkari en nokkru sinni fyrr til baka þegar ég er orðin ein. Og pirringurinn sem ég finn áður en ég geri kæk er alltaf til staðar.
Þetta getur verið erfitt, þegar ég er slæm af TS þá vil ég helst bara vera ein... vil ekki að neinn sjái mig svoleiðis plús það að þá yrði ég bara stressuð og það gerir bara eitt... magnar spennuna upp og kækina í leiðinni.
Ég er ekki að segja að ég hafi það mjög slæmt, alls ekki. Er bara oft hrædd um að fólk dæmi mig vitlaust afþví að það sést ekki á mér í margmenni að ég sé með TS eða vanlíðanina sem fylgir kækjunum.
En núna, í fyrsta skipti síðan ég var 17. ára ætla ég að prófa nýtt lyf sem gæti mögulega minnkað kækina og vonandi hverfa þeir bara alveg. Ég ákvað þetta þar sem TS hefur farið versnandi hjá mér síðustu 2. & 1/2 árið. En ef ég fitna af þessum lyfjum þá verð ég ekki lengi að henda þeim beinustu leið í ruslið!!! En ég tek sénsinn á þessu, fyrir mig og dóttur mína og alla hina sem þurfa að þola pirringinn í mér vegna TS 
Mig langar að geta kúrað hjá dóttur minni og lesið bók fyrir hana ÁN ÞESS að fá þennan vonda pirring hér og þar í skrokknum og kippast til og frá. Ég veit samt að ég er góð mamma enda geri ég mitt besta
Svo er nú farið að gera aðgerðir á fólki með TS... ætla ekkert nánar útí aðgerðina sjálfa EN hún lofar góðu fyrir fólk með TS og ef ég fæ tækifæri til að fara út í aðgerð einhverntíman í framtíðinni þá mun ég sko nýta það tækifæri.
Ég er bjartsýn og hamingjusöm ung kona, þrátt fyrir þetta allt. Sérstaklega vegna þess að ég hugsa svona: ÉG ÆTLA AÐ SIGRA TS, TS FÆR EKKI AÐ STJÓRNA MÉR OG MÍNU LÍFI MIKIÐ LENGUR.
Ég á yndislega dóttur sem gerir lífið mitt frábært!!! Ég á frábæra fjölskyldu sem stendur þétt við bakið á manni! Ég á íbúð, Ég á bíldruslu -sem kemst þó á milli staða! Ég á sjúkdóm, sem hefur kennt mér ýmislegt sem ég hefði ekki viljað fara á mis við. Ég ætla mér að ná stjórn á þessum sjúkdómi þar sem hann hefur kennt mér allt sem ég þurfti að læra. Ég ætla að nýta þá þekkingu öðrum til góðs. Ég kann að fyrirgefa og sjá það góða í fólki. Ég á gott hjarta!
Hvað get ég beðið um fleira? Ekkert, nema að ég fái stjórn yfir lífi mínu
Þetta er komin fínt í bili, ég ætlaði að vísu ekki útí þessa sálma en mikið var samt gott að koma þessu frá sér 
Takk fyrir mig.
Kv. Hanna.
»
02.04.2008 00:00:35 / hannastella
Hvað er Touretteheilkenni og erfist það?
Touretteheilkenni (e. Tourette Syndrome (TS) eða Tourette Disorder) er taugakvilli sem einkennist af kækjum - ósjálfráðum, hröðum, skyndilegum hreyfingum eða hljóðum sem koma endurtekið fyrir á sama hátt. Algengt er að sjúkdómnum fylgi einnig áráttu- og þráhyggjueinkenni, athyglisbrestur og ofvirkni. Mismunandi er hversu mikil einkenni fylgja sjúkdómnum, allt frá því að vera engin og til þess að vera mjög mikil.
Vitað er að kerfið sem stjórnar seyti og verkun taugaboðefnisins dópamíns í heilanum er gallað á einhvern hátt í einstaklingum með Touretteheilkenni. Sumar rannsóknir benda til þess að þetta kerfi sé ofvirkt og skýrir það hvers vegna lyf sem hamla dópamíni hafa oft jákvæð áhrif á þessa einstaklinga. Slík lyf bindast viðtökum dópamíns svo að það getur ekki bundist þeim og þar með ekki komist inn í markfrumur sínar.
Touretteheilkennið er kennt við franska lækninn og taugafræðinginn Georges Albert Eduardo Brutus Gilles de la Tourette (1857-1904).
Fyrstu rannsóknir á tengslum erfða og Touretteheilkennis gáfu til kynna að um væri að ræða sjaldgæft einkenni sem erfist á ríkjandi hátt með A-litningi (öðrum litningi en kynlitningi). Síðan hefur komið í ljós að líklega er um að ræða marga, ótengda galla í erfðamenginu, ekki eitt gallað gen fyrir þetta heilkenni. Hér er því um mjög flókið mál að ræða erfðafræðilega séð og þótt rannsóknir á öllu erfðamenginu hafi leitt í ljós galla í tilteknum svæðum á litningum 4, 5, 8, 11 og 17 hafa engar sjúkdómsvaldandi stökkbreytingar enn verið tengdar þeim.
Í niðurstöðum rannsóknar sem voru birtar í október 2005 kom fram að hægt var að kortleggja gen á litningi 13 sem tengist sumum gerðum Touretteheilkennis. Rannsóknin var hafin þegar kom í ljós að í unglingi með Touretteheilkennið var óeðlileg basaröð á tilteknu svæði á litningi 13. Basaröðin á þessu svæði var öfug miðuð við venjulega. Unglingurinn var sá eini í fjölskyldu sinni með Touretteheilkenni og sá eini með þennan galla í erfðaefni sínu.
Gen þetta (SLITRK1) er tjáð á nokkrum stöðum í heilanum, þar með talið í heilaberkinum og grunnkjörnunum sem eru einmitt þau svæði heilans sem hafa verið talin tengjast myndun Touretteheilkennisins. Þegar þetta gen starfar með eðlilegum hætti tekur það þátt í vexti taugunga þar, einkum lengingu og skiptingu gripla í greinar sem taka á móti taugaboðum frá öðrum taugungum. Þegar genið eða önnur gen sem hafa áhrif á tjáningu þess hafa stökkbreyst myndast hins vegar styttri griplur. Ekki er vitað nákvæmlega hvaða afleiðingar þetta hefur en það er ljóst að afurð gensins hefur áhrif á vöxt og sérhæfingu taugunga í heilanum og stökkbreyting í því hlýtur að trufla þau ferli.
Þessi nýja vitneskja er lítið skref í þá átt að skilja þroskun taugunga í heilanum betur og verður vonandi lóð á vogarskálina til að skilja betur orsök Touretteheilkennis og þar með ef til vill finna betri meðferðarúrræði og jafnvel lækningu einhvern tíma í framtíðinni.
Algengar spurningar:
Hvað er TS í stuttu máli?
Tourette Syndrome (TS) er taugasjúkdómur sem stafar af ójafnvægi á boðefnaflæði í heilanum. Helstu einkenni eru svokallaðir kækir, sem eru tilgangslausar en óviðráðanlegar hreyfingar eða hljóð. Einnig fylgja oft áráttu- og þráhyggjueinkenni, og eða einkenni athyglisbrests og ofvirkni. Tourette er arfgengur sjúkdómur sem ekki er hægt að lækna, en oftast hægt að halda einkennum í skefjum með lyfjum, þótt þess gerist ekki alltaf þörf.
Hversu algengt er TS?
Miklu algengara en áður var talið, en talið er að 5 af hverjum þúsund, hafi einkenni TS. Geta einstaklingar með TS stjórnað kækjunum? Einstaklingar með TS geta haldið aftur af kækjunum í stuttan tíma, allt frá nokkrum mínútum og upp í nokkra tíma. En áhrifin verða svipuð og af því að reyna að halda aftur af hnerra, nú eða að sleppa því að depla augunum. Fyrr eða síðar verður að sleppa kækjunum lausum, og þá verða þeir oftast kröftugri en ella. Margir hlaupa inn á baðherbergi til að geta sleppt kækjunum lausum í einrúmi sem þeir hafa haldið niðri. Skólanemandinn reynir ef til vill bæla kækina í skólanum, sem kemur niður á einbeitingunni, og þegar heim kemur hleypir hann þeim út. Þess vegna eru kækir oft meira áberandi heima við en í skólanum. Aldrei skyldi biðja einstakling með TS að “hætta nú þessum kækjum”. Það verður einungis til að skapa spennu sem oft eykur frekar á kækina. Kækir versna yfirleitt við allt álag, hvort semer jákvætt eða neikvætt.
Hverjar eru batahorfurnar?
Það er engin lækning til við TS, en oft virðast einkennin minnka með aldrinum, þótt það sé alls ekki algilt. TS er ekki hrörnunarsjúkdómur, hefur ekki áhrif á greind og þess vegna er oft undir einstaklingnum sjálfum komið hvort hann kýs að nota lyf til að slá á einkennin. Það er því ekkert sem mælir gegn því að TS einstaklingur geti lifað eðlilegu lífi. Þó að einkenni eins og kækir eigi það til að hverfa með aldrinum, virðist í sumum tilfellum sem taugasálfræðilegir kvillar eins og þunglyndi, ofsakvíði, óstöðugt skaplyndi (oft er talað um Tourette storma) og andfélagsleg hegðun gætu aukist.
Hvernig erfist TS?
Rannsóknir benda til að TS erfist ríkjandi, sem þýðir að ef annað foreldri hefur sjúkdóminn eru um helmingslíkur á að barnið erfi genið sem veldur TS. Hins vegar er mjög mismunandi hversu mikil einkenni koma fram, það getur verið allt frá engum og upp í mikil einkenni. Kyn einstaklingsins hefur einnig mikið að segja í þessu sambandi. Drengir eru 3-4 sinnum líklegri til að fá einkenni sjúkdómsins, en stúlkur. Flest fólk sem erfir genið fær hins vegar ekki meiri einkenni en svo að það þurfi meðferð.
Hér er ljóð eftir lítinn dreng með Tourette heilkennið:
Ég er með könguló inni í mér. Hún lætur varir mínar smella. Ég er með könguló inni í mér og mér finnst hún gera mig svartan. Hún heitir Tourette.
Ég er með kengúru inni í mér. Hún lætur mig hoppa upp og niður. Ég er með kengúru inni í mér og mér finnst hún gera mig brúnan. Hún heitir Tourette.
Ég er með frosk inni í mér. Hann gerir mig grófan og vondan. Ég er með frosk inni í mér og mér finnst hann gera mig grænan. Hann heitir Tourette.
Ég er með ál inni í mér og hann lætur mig hlykkjast um. Ég er með ál inni í mér og hann lætur mig skjálfa. Hann heitir Tourette.
Ég er með villihest inni í mér. Hann lætur mig prjóna. Ég er með villihest inni í mér og hann valhoppar stöðugt. Hann heitir Tourette.
Ég er með tígrisdýr inni í mér og það lætur mig hvæsa. Ég er með tígrisdýr inni í mér og þegar ég ærist segi ég “urrrrrrr”. Það heitir Tourette.
Ég ætla að skjóta þessi dýr. Ég ætla að skjóta með banana. Ég ætla að skjóta þessi dýr. Ég ætla að vera Tarzan.*
Og þá mun hvolpurinn inni í mér gera mig glaðan og leika sér. Og þá mun hvolpurinn inni í mér aldrei hlaupa frá mér. Hann heitir Justin ** eins og ég.
Þetta er líka ljóð eftir lítinn dreng með Tourette heilkennið.
Hjálpaðu mér mamma! Til þín get ég leitað! Það er eitthvað inni í mér sem enginn sér. Þau leggja skuldina á þig þegar ég er óþekkur, Og trúa því að ég verði þægur ef þú ert nógu ströng.
Hvað vita þau um allar þínar byrðar og allar okkar sorgir, Um bænir okkar til Guðs hvað höfum við gert rangt? Ég sparka og lem, mamma, þegar ég er reiður. Síðan iðrast ég, mamma, hræddur og þjakaður.
Ég ætla mér ekki að slá, ég vil vera almennilegur. Vertu þolinmóð, mamma, þú verður að hjálpa mér. Aðrir segja að ég geti það, ef vil það. Þau skilja ekki að mér tekst það ekki.
En mamma og pabbi vita að ég reyni, Og elska mig þrátt fyrir að mér takist það ekki. Allt væri auðveldara ef ég væri ekki með Tourette.
Ég ríf í hárið og bít í skyrtuna, Ég sparka og lem og tel upp að fjórtán, Ég bölva og æpi og læt öllum illum látum, Og get ekki hætt fyrr en ég fæ næstu töflu.
Svo kyssi ég þig á nefið og verð að endurtaka það: Því allt verður að ske á réttum tíma og þegar Tourettinn vill. En á morgun ætla ég að reyna, mamma, þá ætla ég að vera þægur. Búa um rúmið mitt? Bursta hár mitt og tennur? Auðvitað vera þægur! Ég ætla að vera svo duglegur mamma, bíddu bara og sjáðu til.
Ég ætla að gera allt til að halda friðinn. Ekki stríða bróður mínum, leika mér fallega. Sitja fallega í sæti mínu þegar skólabjallan hringir. Ekki vera með læti, ekki sparka, ekki slá og engum að hrinda. Ekki fleiri uppátæki.
Nei, ég lofa þér að ég ætla mér að verða venjulegur drengur. Hjálpaðu mér mamma! Þig get ég beðið. Þennan venjulega dreng sérðu, er það ekki? Hjálpaðu mér að sýna hann öðrum. Hjálpaðu mér að sýna að undir Tourette er drengur sem er vinalegur.
-Þetta lýsir því nákvæmlega hvernig mér leið þegar ég var barn.. fyrir utan að ég hafði ekki hugmynd um hvað væri að mér, en vissi þó að ég gat ekki stjórnað þessum hreyfingum og skapinu mínu.
»
18.02.2008 01:52:35 / hannastella
Ég veit ekkert um hvað ég á að blogga núorðið  Væri alveg til í að losa almennilega um pirringinn sem ólgar innra með mér, en ég held að ég sleppi því hérna á netinu
Annars hafa síðustu 3.vikurnar verið ansi skrautlegar, hef fundið fyrir öllum tilfinningum sem hægt er að finna held ég barasta. En það eina sem ég finn fyrir núna er reiði og aftur reiði, það tekur á að vera svona reiður..það er eitt sem er víst. Litla skvísan mín er líka svo næm á mömmu sína að þetta hefur bitnað á henni líka greyinu, auðvitað finna þau það líka þegar manni líður ekki vel. Svo var hún búin að aðlagast þessu öllu svo vel og svo var það brotið niður og greyið Líney skildi ekki alveg afhverju allt var svona breytt. Ég er samt ánægð í heildina, er sátt við að vera ein. Það eru þúsund trilljónir fiska í sjónum, hef engar áhyggjur af því. En það er margt sem ég er ekki sátt við og ég verð bara að leita inná við og sættast við sjálfa mig og aðra. Það er svo hrikalega erfitt að vera reiður og sár.
En jæja, nóg um það. Líney Mist er hjá ömmu sinni og afa núna í nótt , hún sagði við mömmu sína í kvöld: "mamma, ætla að lulla hjá ömmu og afa, okei bææ mamma" hehe hún er svo mikil mús þessi elska. Það er ágætt að fá að sofa út í fyrramálið. Þau skötuhjúin eru svo að fara til kanarý í vikunni og það þýðir bara eitt.. ég og Líney verðum aleinar og húsmóðirin mikla þarf að elda alla þessa daga... obbossíí. Það er að vísu löngu orðið tímabært að maður fari að æfa sig í eldamennskunni, hef notast mjög mikið við hótel mömmu. Svo er ég nú að pæla í að fara suður til Reykjavíkur með skvísuna í byrjun mars, ætlum að fara til Danna í sveitina og hitta hann svo líka í Reykjavík. Það verður yndislegt að sjá Líney knúsa pabba sinn, sem hún hefur séð alltof sjaldan síðasta hálfa árið og rúmlega það. Ég hlakka líka mikið til að hitta hann og við verðum án efa einsog hamingjusöm lítil fjölskylda þegar við hittumst hehe. Það verður gaman fyrir Líney að vera með mömmu sinni OG pabba, ekki bara alltaf mömmu sinni. Ég kvíði samt fyrir því að hún vill líklega ekki sleppa honum aftur. Svo fær hún að gista kannski eina nótt hjá ömmu sinni í Mosó EF skvísan vill það, það verður gaman að sjá hvernig hún bregst við föðurfólkinu sínu núna.. en hún tekur ábyggilega bara ástfóstri við þau. Mig hlakkar mikið til að hitta alla fyrir sunnan, maður á marga góða að þar, vini og fjölskyldu. Svo verðum við að fara til Tönju okkar og sjá litla guttann hennar, hann er bara sætastur.
Annars hef ég lítið gert síðustu vikurnar, fór reyndar til Akureyrar um daginn og ætlaði þvílíkt að detta í það og skemmta mér vel en það endaði ekki beint þannig, hehe. Ég lagði mig svo bara í sófanum hennar Alvildu og kúrði þar til hádegis og fór þá heim til litlu minnar. En við Mæja fórum nú á Höllina á föstudaginn, það var bara mjög fínt þó að aldurinn á fólkinu þarna hafi verið 40+. Já og Danni sendi Líney Mist pakka um daginn.. hann keypti á hana 3. buxur, 3.peysur og náttföt, bangsa (sem hún lét ekki frá sér í marga daga) og dúkku. Hún var svo himinlifandi með þetta, það var æðislegt að sjá hvað þetta gladdi hana og hún sagði öllum að pabbi sinn hafi gefið sér þetta. Takk fyrir Danni minn 
Svo vil ég senda batnaðarkveðjur til hennar Lilju, vonandi ertu að hressast af þessari flensu sæta :* Hún býr í næstu íbúð en það er eitthvað voðalega langt á milli íbúðanna... skil ekkert í fólkinu sem byggði þetta raðhús 
Jæja ég býð bara góða nótt, ég og Doddi ætlum að fara kúra saman 
»
30.01.2008 11:05:00 / hannastella
Góðan daginn. Ég fer alveg að koma með annál 2007 fyrir hana Lilju mína  Ég er bara í andskotans ástarsorg!! En ég kemst í gegnum það einsog allt annað Ég næ mér í góðan kall einn daginn, hef engar áhyggjur af því Það er bara ekkert spennandi að missa einhvern sem maður elskar Ég veit ekki hvar ég væri án hennar Lilju minnar, hún er sáli af bestu gerð Plús það að ég er hörkutól  Svo ætla ég að hressa mig við á föstudaginn og kíkja til Akureyrar og fara í plokkun og litun og svo ætla ég líka að næla mér í smá brúnku Verð án efa algjör skvísa ætla líka að kaupa mér djammgalla Svo á laugardaginn ætla ég að djamma frá mér allt vit eða svona næstum því og vonandi kemst hún Lilja með mér!!??!!  Bið bara að heilsa í bili og ég ætla að enda þetta svona... -Það sem þú átt í vasanum er ekki mikilsvert, eingöngu það sem þú átt í hjarta þínu. -Snúðu andlitinu mót sólinni og þú munt ekki geta séð skuggana. -Ég bað um að verða sterkur og Guð gaf mér erfiðleika til að gera mig sterkan. Ég bað um að verða vitur og Guð gaf mér verkefni til að leysa. Ég bað um velsæld og Guð gaf mér hug og hönd til að vinna. Ég bað um hugrekki og Guð lét mig mæta hættum til að leysa. Ég bað um ást og Guð gaf mér fólk í erfiðleikum sem ég gat hjálpað. Ég bað um greiða og Guð gaf mér tækifæri. Ég fékk ekkert af því sem mig langaði í! Ég fékk allt sem ég þurfti!
-Að óttast ástina er að óttast lífið og sá sem þorir ekki að lifa er dauður að mestu.
Kv. HANNA PANNA.
»
31.12.2007 02:32:11 / hannastella
Hæhæ, það eru ábyggilega allir hættir að nenna skoða síðuna þar sem ég blogga nánast aldrei  Ég hef bara svo margt annað að gera en að blogga hehe... er svo ótrúlega hamingjusöm þessa dagana og síðustu mánuði að ég held stundum að mig sé að dreyma Ég á yndislegan kærasta og bestu dóttur í heiminum! Gæti ekki verið hamingjusamari en ég er í dag, held ég barasta  Jólin eru afstaðin og ég fékk fullt af flottum gjöfum og Líney Mist fékk heilan helling af gjöfum og við þökkum bara kærlega fyrir okkur Elli gaf mér bara magnaða gjöf/gjafir, takk ástin mín Svo eru áramótin annað kvöld, ótrúlegt að eitt enn ár sé á enda. Þetta verða frekar skrítin áramót þar sem Alvilda verður að vinna á Ak og verður s.s. ekki hjá okkur, Hrafnhildur er farin suður og mamma verður að vinna til 23 eða 00. Þannig að eftir sitjum við Líney Mist, pabbi og amma.. en við eigum eftir að hafa það gott og sprengja nokkra flugelda og tertur Annars held ég að okkur nægi að horfa uppá brekku, hehe þar verður einn skotglaður á ferðinni Svo er planið að hitta ástina mína eftir miðnætti og við ætlum að gera eitthvað skemmtilegt. Allavega er planið að djamma á Höllinni Ég skrifa bara aftur á nýju ári og tek saman það helsta sem gerðist árið 2007... sem er svosem ekki margt samt. En ég er í heildina ánægð með árið sem er að líða og hlakka til að takast á við nýja árið  

Gleðilegt ár allir saman og farið varlega inn í nýtt ár 
»
28.11.2007 09:56:23 / hannastella
Ég nenni ekki að blogga...  Kannski nenni ég því fyrir jól  enn það er eitt sem ég verð að láta flakka... ÉG HATA VÖRUTORG Á SKJÁ EINUM!!! Þvílík leiðindi!!
»
17.09.2007 10:52:29 / hannastella

Ég er svona þreytt Neinei ég er eldhress.. búin að hafa það fínt fyrir utan drama drama drama... en það fylgir því að búa í litlum bæ... Anyways.. nenni ekki að blogga meira hehe, þarf að fara taka til og þrífa því að heimilið er ekkert spes vegna þess að ég fékk mér ferðatölvu og er búin að vera límd við hana síðan ég keypti hana!! Blesss... hafið það gott, ég ætla að gera það
»
07.09.2007 09:27:55 / hannastella
»
16.08.2007 01:14:56 / hannastella

100 góð ráð til að
panta pizzu 
1. Ef þú ert með tónvals-síma, þá skaltu ýta af og
til á takkana. Biddu síðan manneskjuna sem er að taka við
pöntuninni um að hætta þessu.
2. Búðu til "feik" kortanúmer og athugaðu hvort að viðkomandi taki
við númerinu.
3. Notaðu "ýkt" mikið slangur þegar þú pantar pizzuna. ("Meikaðu
eina þokkalega feita slæsu með plenty tjís á kantinum .."
4. Segðu þeim að senda pizzuna, og spurðu hvort að sendillinn geti
komið við á Macdonalds fyrir þig ot tekið einn "Big Mac" með fyrir
þig í leiðinni.
5. Ljúktu símtalinu með því að segja: "Mundu .. að við áttum aldrei
þetta samtal."
6. Segðu þeim sem að tekur pöntunina að samkeppnisaðilinn sé á
hinni línunni og þú ætlir að taka besta boðinu.
7. Gefðu þeim upp heimilisfangið hjá þér .. segðu síðan "Komdu mér
á óvart" og legðu á.
8. Svaraðu þeirra spurningum með spurningum.
9. Með mjög blásandi röddu .. segðu þeim að þér sé skítsama um alla
næringu og heilsufæði .. þú viljir bara eitthvað hrrrrikalega
fitandi.
10. Bættu þessum orðum inní samtalið: AFTURHALDSHYGGJA - KEIKÓ -
BÓNUSFERÐIR - FLÖSUR
11. Segðu þeim að þú viljir hafa skorpuna ofaná í þetta
skiptið.
12. Syngdu pöntunina við eitthvað gott Metallica lag.
13. Ekki segja hvað þú viljir á pizzuna - heldur skaltu stafa
það.
14. Talaðu mjög smámælt þegar þú segir "sósa" og "ostur" .
15. Stamaðu á öllum "p" orðum.
16. Ef þú hringir í Pizza 67 skaltu spyrja hvort viðkomandi viti
hvaða tilboð Hrói Höttur er með .... (og öfugt).
17. Spurðu viðkomandi hvernig hann sé klæddur.
18. Láttu braka í puttunum á þér þegar þú talar (nálægt
símtólinu)
19. Segðu "halló" ... síðan skaltu þykjast vera undrandi og soldið
ruglaður í svona fimm sekúndur .. og láttu síðan líta út fyrir að
þau hafi hringt í þig.
20. Bunaðu út úr þér pöntununni. Ef þau spyrja hvort þú viljir gos
með þessu, þá skaltu "panikera" og verða utan við þig.
21. Segðu viðkomandi að þú sért eitthvað dapur. Reyndu að láta
hann/hana lífga þig upp.
22. Búðu til lista yfir mjög framandi álegg. Pantaðu þau sem
álegg.
23. Skiptu um hreim á þriggja sekúndna fresti.
24. Pantaðu 52 pepperoni sneiðar og láttu raða þeim í blómamynstur
á pizzuna.
25. Láttu sem þú þekkir viðkomandi: "Bíddu ... vorum við ekki saman
í Vatnaskógi?"
26. Byrjaðu pöntunina á því að segja "Ééééég æææætla að fáááá
............" bíddu í smástund, sláðu þig þá í framan og segðu "NEI
.. ég ætla ekki að fá það"
27. Ef þau endurtaka pöntunina fyrir þig í lok símtalsins .. segðu
þá "Ok .. þetta verða þá 1299 .. þú borgar í næstu lúgu".
28. Reyndu að leigja þér pizzu.
29. Pantaðu á meðan þú ert að brýna hnífinn þinn.
30. Spurðu hvort þú megir eiga pizza kassann. Þegar þau segja "já"
skaltu þykjast verða rosalega feginn.
31. Settu ákveðna áherslu á endann á öllum orðum. T.d. "i" í
pepperoni .... (Prófaðu ....)
32. Þegar þú ert spurður hvernig þú viljir pizzuna .. segðu þá
"Shaken .. not stirred".
33. Segðu: "Ertu viss um að þetta sé (viðkomandi pizza staður)?"
Þegar þau segja já, segðu þá
: "Jæja .. þetta er líka þar! Þú þarft nú að útskýra ansi margt!"
Þegar þau biðja um einhverskonar
sönnun fyrir því að þú sért í rauninni viðkomandi pizza staður,
byrjaðu þá að vola og spurðu:
"Veistu hvernig það er að láta ljúga að sér?"
34. Færðu tólið alltaf lengra og lengra frá eftir því sem líður á
samtalið. Í lok símtalsins skaltu færa það snöggt til baka og öskra
"BLESSSSS ......." af öllum lífs og sálarkröftum.
35. Biddu þau um að dobbel tékka á því hvort pizzan sé ekki
örugglega dauð þegar hún kemur úr ofninum.
36. Hermdu eftir röddinni á þeim sem tekur við pöntuninni.
37. Útilokaðu öll sagnorð þegar þú pantar.
38. Þegar þú ert spurður "Hvað viltu?" Segðu þá ... "Ehh .. ertu að
meina núna .... eða á pizzuna?"
39 Spilaðu country tónlist á bakvið og talaðu með mjög ýktum
western hreim.
40. Segðu að þetta sé brúðkaupsafmælið þitt og spurðu hvort að
sendillinn sé til í að fela
sig í runnunum fyrir framan hjá þér og koma konunni á óvart með
pizzunni.
41. Skemmtu þeim sem að tekur við pöntuninni með lítt þekktum
staðreyndum úr Country-tónlistar heiminum.
42. Spurðu hvort að það sé hægt að senda matseðil heim til þín.
43. Talaðu stjórnmálalega, og biddu um uppreiknað verð pizzunnar
með tilliti til flatra ríkisbundinna vaxta.
44. Segðu að þú getir borgað þetta þegar að fólkið sem ætli að
fjármagna kvikmyndina þína hringi til baka.
45. Spurðu þau hvort þau geri sér nokkra grein fyrir því hversu
mikið velti á þessari pizzu!!
46. Spurðu með hvaða áleggi þau mæli með 83 árganginum af Chatenau
Du Pape.
47. Ropaðu beint í tólið og segðu síðan "Skamm skamm .. vondur
hundur."
48. Pantaðu sneið .. ekki heila pizzu.
49. Öskraðu "Ég er búinn að fá nóg af kvenfólki/karlmönnum. Sendu
mér flottasta sendilinn þinn!!
50. Farðu að hrjóta örlítið í miðri pöntun ... síðan skaltu hrökkva
við og segja "Hvar var ég .... hver ert þú?"
51. Sálgreindu þann sem tekur við pöntuninni.
52. Hringdu ... spurðu hvaða símanúmer þetta sé .. skelltu síðan á
... gerðu þetta svona 5 sinnum áður en þú pantar loksins.
53. Pantaðu einhver tvö álegg .. segðu síðan "Nei .. bíddu aðeins
.. þau lenda alltaf í slag."
54. Lærðu að bera fram innihaldslýsinguna í "Snickers" og pantaðu
það síðan orðrétt á pizzuna þína.
55. Hringdu og kvartaðu undan þjónustunni. Hringdu 5 mínútum síðar
og afsakaðu þig með því að þú hafir verið fullur og ekki meint
neitt með þessu.
56. Biddu viðkomandi um að biðja yfirmann sinn um að segja
framkvæmdarstjóranum að hann sé rekinn.
57. Hringdu og tilkynntu þjófnað.
58. Notaðu upphrópanir eins og: "Jeremías minn einasti .. " og
"Hjálpi mér allir heilagir .."
59. Biddu um þann sem tók pöntunina þína síðast afþví að "hann
skilur mig".
60. Ef að hann/hún stingur uppá tilboði, segðu þá með mjög væminni
röddu: "Ég læt ekki fallast í freistni yfir þínum freistandi
orðum"
61. Hugsaðu upphátt um hluti einsog "Þvílík nasahár .. ég ætti að
gera eitthvað í þessu".
62. Reyndu að panta og drekka eitthvað um leið.
63. Byrjaðu samtalið á þessum orðum "Ég að hringja í Pizza stað,
taka eitt ... ooooooogggg .... action!"
64. Spurðu hvort að þetta sé lífrænt ræktuð pizza.
65. Fáðu upplýsingar um viðhalds og varahlutaþjónustu við
pizzuna.
66. Vertu mjög varkár í gegnum alla pöntunina.
67. Þegar þau endurtaka pöntunina ... segðu þá "Flott .. einu sinni
enn .. og reyndu að finna þig í þetta skipti ... vertu pizzan ..
vertu pizzan."
68. Ef þú ert með tónvalssíma ... ýttu þá á 9-1-1 á 5 sekúndna
fresti.
69. Þegar þú ert búinn að panta, segðu þá "Hmm .. hvað gerir þessi
takki eiginlega". Hermdu eftir því að samtalið hafi slitnað.
70. Byrjaðu samtalið á því að segja dagsetninguna og tímann og
segðu síðan "Þetta er líklega síðasta pöntunin mín ........"
71. Pantaðu .. og segðu síðan að þetta samband ykkar komi ekki til
með að ná lengra en þetta.
72. Spurðu hvort þau kannist við deig-meðferðina "Pizza búmm". Búðu
til lýsingu á því hvað þetta þýðir og biddu um að þetta sé gert við
pizzuna þína.
73. Segðu "Ksssssssssssssssssssssht" frekar hátt í símann ... og
síðan "Wowwww .... fannstu fyrir þessu".
74. Segðu viðkomandi að hann sé með mjög fallega áru .... reyndu að
nýta þér þetta sem afslátt.
75. Þegar þú ert að fara yfir álegginn ... skaltu lauma inn annari
pizzu tegund. Dæmi: "Pepperoni, Ananas, Americano, Paprika ..."
76. Lærðu að spila blús riff á munnhörpu .. stoppaðu reglulega til
að spila riffið.
77. Spurðu hvort að viðkomandi vilji smakka pizzuna þína .. og
hvort þú megir smakka uppáhaldstegundina hans.
78. Hermdu eftir Davíð Oddssyni og segðu að þú viljir ekki að
einhver "pizzu-krakka-bólu-fésa-auli fokki upp pöntunninni".
79. Settu þau á "hold"
80. Kenndu viðkomandi einhvern leynikóda og notaðu þann kóda við
allar pantanir framvegis.
81. Laumaðu útúr þér "Það er sprengja inná staðnum". Þegar
viðkomandi biður þig um að endurtaka þetta skaltu segja:
"Fengi ég tilboð ef ég væri á staðnum."
82. Byrjaðu á því að panta sveppi ... í lokin skaltu segja "Og alls
enga sveppi". Skelltu á áður en þú færð viðbrögð.
83. Þegar að pöntunin er endurtekin fyrir þig .. breyttu henni þá
aðeins ... breyttu henni aftur í annað skiptið ... og í það þriðja
skaltu segja:
"Þú bara nærð þessu ekki ... DJÍSESS ......"
84. Þegar þau segja verðið, skaltu segja "Whooo ... þetta hljómar
alltof flókið .. ég kann ekkert í stærðfræði".
85. Prúttaðu.
86. Biddu um tveggja tommu pizzu.
87. Spurðu hvaða líftryggingar þau bjóði uppá.
88. Þegar þau spyrja "Er þetta þá komið?", segðu þá "Það kemur bara
í ljós ... er það ekki."
89. Biddu um að kassinn verði með blindraletri.
90. Spurðu hversu margir höfrungar þurftu að deyja fyrir þessa
pizzu.
91. Meðan þú pantar ... skaltu fara í mútur .. skipta oft um rödd
.. og verða vandræðalegur.
92. Bjóddu einhverskonar skipti díl.
93. Aldrei nota orðið "pizza". Reyndu að komast hjá því á allan
mögulegan máta. Ef að hann/hún segir það skaltu segja "AAAArrgg ...
ekki segja þetta orð."
94. Láttu mynd með góðu bílaeltingar atriði rúlla í vídeóinu og
stilttu hljóðið frekar hátt. Þegar skotið er úr byssu skaltu öskra
"ÁÁÁ !!"
95. Ef að hann/hún stingur uppá einhverju með pöntuninni, spurðu
þá: "Afhverju ertu að reyna að refsa mér?".
96. Spurðu hvort að þessi pizza sem þú pantaðir þér sé hreinræktuð
og hvort að það sé til ættartafla með henni.
97. Biddu um gufusoðna pizzu.
98. Biddu um nafnið á þeim sem að tók við pöntuninni (segjum að
hann heiti Kristján). Hringdu síðan á slaginu á heila tímanum og
segðu "Kristján .. þetta er
vöknunarþjónustan. Klukkan er þrjú!!" Skelltu á.
99. Reyndu að fá að greiða fyrir pizzuna með þjónustu í þágu
almennings.
100. Ef eitthvað af undanförnu er hafnað af pizza staðnum, segðu þá
væminni röddu "Þeir á hinum pizza staðnum leyfa mér alltaf að gera
þetta."
*Veit að þetta er gamallt
en þetta er alltaf jafn fyndið* 
»
10.08.2007 00:19:20 / hannastella
Hæjjjj
Var þetta ekki
gelgjulegt?
En já, það er allt fínt að frétta
af mér og litlu snúllu. Erum hressar einsog venjulega og njótum
lífsins Gefum öndunum svo oft brauð að þær hljóta að fara fá
offituvandamál á næstunni. Ég vona að hún fari að komast á
leikskólann fljótlega, hennar vegna... ég hef allan tímann í
heiminum fyrir hana sko, hehe. Hún Lilja bauð okkur í göngutúr
í dag, ég hélt í hundinn og hún labbaði með kerruna. Ég
er svo aum að ég var ýmist dregin áfram eða látin stoppa, held að
hundurinn hafi verið í göngutúr með mig! Nei segi svona, hann
Ottó er eðalhundur og Lilja er greinilega góður hundaeigandi
Þetta var mjög hressandi göngutúr og aðeins lengri en ég er vön ...
samt var þetta ekkert langt í hennar augum... ég var samt frekar
þreytt og sveitt eftir þetta Maður er nottla ekkert í besta
forminu En hey ég er samt búin að léttast um 4 kg síðan í haust,
klöppum fyrir því!! 
Ég fæ íbúðina mína einhverntíman
eftir 20.ágúst, get ekki beðið!!! Það verður bara æði að vera í
sinni eigin íbúð og á JARÐHÆÐ!! Vonandi étur Ottó ekki köttinn
minn samt, þar sem þeir verða nágrannar Það verður svo gott að
verða nágranni hennar Lilju aftur, hún losnar ekki við mig næstu
árin.. múhahahaa
Ég er reyndar að sakna mömmu og
pabba, þau eru í útlöndum og ég er að passa húsið.. þannig að ekki
einu sinni reyna að brjótast inn gott fólk Því að sagan segir að
ég slái fólk Þvílíka vitleysu hef ég bara aldrei heyrt áður
Ég er bara saklaus móðir!! En já, get ekki beðið eftir að fá þau
heim! Líney sá vinnubílinn afa síns um daginn, Hörður var á honum.
En litla skottan sagði þegar hún sá bílinn: VEIIIII og klappaði og
brosti út að eyrum EN svo þaut bíllinn bara framhjá og brosið fór
af skvísunni, hehe Og ef ég spyr hana hvar afi hennar eða
amma séu þá segir hún: VINNA. Það er nú meira hvað fólkið er lengi
í vinnunni!
Og svoooooooooo er fiskidagurinn
mikli á laugardaginn, vúhú Ég hef ekki farið á þetta dæmi í 4. ár
en ég ætla að fara í ár og með litluna mína með mér. Það verður
bara gaman. Ætti maður ekki að kaupa sér kaðal og festa í barnið
svo maður týni því ekki?? Fæ kannski hundaólina hennar Lilju
lánaða, nei oj djók. En það verður alveg stappað af fólki þarna
samt, eins gott að hafa Líney í kerru, hehe Ætla að kíkka til
Dalvíkur á morgun líka, kíkkum í súpu einhversstaðar Ég ætla svo
að kíkka á djammið á Dalvík á laugardagskvöldið EF ég fæ pössun.
Annars fer ég bara snemma að sofa og vakna hress með skvísunni á
sunnudaginn Svo ætlar Berglind og Sibbi ekkert að fara á
fiskidaginn, neiii þær ætla á Gay Pride, þið skemmtið ykkur ekkert
vel án mín Jú jú, vonandi 
Ég er svo glöð að Lauga frænka
hafi komið norður til okkar, við Líney, amma og Lauga erum búnar að
skemmta okkur vel síðustu daga, við erum ágætar saman
kjéllingarnar Fórum á rúntinn á Dalvík í gær, vá hvað það er
komið mikið af fólki þangað Það á allt eftir að fyllast þarna um
helgina! Fórum til Ak fyrst og í heimsókn til Alvildu. Svo skrapp
ég í brúnkusprey, mjög spes að standa á g-streng fyrir framan
einhverja konu sem segir: "Beygðu þig fram"  En ég er rosa
brún sko, reyndar með dökkbrúnar klessur inní lófunum.. mjög
flott
Ég er svo þreytt að ég er farin að
tárast, ætla að fara sofa
Kvittið nú 
Kv. Hanna Súkkulaðibrúna sem lemur
ekki fólk!!
»
07.08.2007 23:13:11 / hannastella
Góða kvöldið!
Ég ætla að skrifa puntablogg því
að ég nenni ekki að skrifa ritgerð um það hvernig helgin
var
-
Fór til Akureyrar á
föstudaginn
-
Hitti þar Berglindi, Alvildu og
fleiri.
-
Berglind
keyrði
-
Ég drakk
-
Það voru
teknar myndir
-
Berglind fór
heim
-
Ég fór í
sjallann
-
varð alveg
bleeekuð
-
man ekki
meira
-
Fór heim til Alvildu að sofa
minnir mig
-
Vaknaði með áfengi í
blóðinu
-
leit í töskuna
mína
-
þar var
víbrador
-
Keypti hann víst um nóttina?

-
Fór út að éta með Heiðari,
Gústa, Sigurveigu og Björgvin frænda
-
Það
var hlegið
-
Var
kölluð Hanastél
-
Keyrði heim
-
Náði
í barnið til ömmu
-
ömmu
leist ekkert á mig
-
Gaf
öndunum brauð
-
Fór
með barnið í pössun um kvöldið
-
fór til
Ak
-
ætlaði að
djamma
-
gat ekki drukkið vegna
þynnku
-
fór að sofa
-
vaknaði
-
fór heim
-
gaf öndunum
brauð
-
haha
-
Fór aftur til Ak með
Líney
-
Fórum út að borða með Líney,
Alvildu og Heiðari
-
Fór með þeim í
tívolíið
-
Líney skemmti sér vel í lestinni
þar
-
Fór heim en stoppaði á Dalvík að
ná í Laugu
-
Líney fór í pössun til
Laugu
-
Ég fór til Ak
AFTUR
-
Fór til Berglindar og
Sigurveigu
-
Berglind varð lasin þannig að
Sigurveig kom á djammið
-
Fórum heim til
Alvildu
-
drukkum
-
drukkum meira
-
löbbuðum í
sjallann
-
drukkum
-
ætlaði að fá
einfaldann
-
hann endaði
tvöfalldur?
-
hitti fullt af fólki sem ég
þekkti
-
var boðið í
glas
-
gaurinn merkti mig með blikkandi
gleraugum svo hann fyndi mig aftur
-
hann fann mig
aftur
-
ég hljóp burt
-
Ég fór á
röltið
-
talaði í símann í
hálftíma
-
pissaði einhversstaðar
úti
-
var lengi að koma buxunum upp
aftur
-
fór í sjallann aftur og
drakk
-
fór út að
reykja
-
Ég fór á dansgólfið með
Sigurveigu
-
dansaði og
dansaði
-
færði mig
aðeins
-
varð reið
-
sigurveig hélt að ég væri orðin
geðveik
-
mér var hent út

-
sendi sms
-
fór í vitlaust
númer
-
sendi aftur
-
Lilja hringdi
-
Ég vældi
-
hún vældi
-
Labbaði af stað til
Alvildu
-
með einu
stoppi
-
grenjaði meira
-
Fór heim til Alvildu að reyna
sofna
-
Dísa kom þá
-
við kúrðum til
fóta
-
enduðum í
hláturskasti
-
varð döpur
-
fór að sofa
-
vaknaði pirruð, sár og
þunn
-
Fór að borða með Al og
heiðari
-
hringdi símtal
-
missti
matarlystina
-
keyrði heim
-
náði í Líney
-
leið ílla allan
daginn
-
fór að sofa
snemma
-
Nýr dagur rann
upp
-
...og ég er bara sátt í dag, eða
þannig
Þetta hljómar allt einsog ég hafi
verið snarvitlaus um helgina, en þannig var það ekki. Ég varð bara
sár og reið en hey.. ég lifi þetta af sko!
Ég vona að þið hafið skemmt ykkur
vel yfir lestrinum
Ég kveð í bili,
Kv. Hanna trítilóða
»
02.08.2007 23:46:19 / hannastella
Hæhæ..
Það er nottla kominn tími á blogg Allt
fínt að frétta af mér sko Mamma og pabbi eru farin út og
við mæðgurnar erum búnar að nýta okkur heimilið þeirra síðan
þau fóru Svoo notalegt að vera hérna! Við fórum til Ak
í morgun og það var rosa gaman. Við náðum í Alvildu og fórum
svo á Crown chicken eða hvað það nú heitir og fengum okkur að
borða með Heiðari og vini hans. Svo fórum við Líney og
Alvilda á Glerártorg og þegar ég var að borga í Rúmfó þá sá
ég hana Írisi "tengdó" (verður hún ekki alltaf tengdó
annars?) og ég kallaði í hana, henni og Gunna
"tengdó" hehe fannst ekki leiðinlegt að sjá hana Líneyju og
hún var líka rosa kát að hitta þau. Ása og Brynja voru líka
rosa glaðar að sjá okkur og við þær. Svo sagði Líney við þau:
"SÍ" sem þýðir ÍS á hennar íslensku. Og gömlu hjúin keyptu
handa henni ís (mamman ekki eins sátt, barnið er ekki
mjög þrifarlegt með ís) En það var nú samt í lagi. Svo
fórum við í Bónus og þar sáum við þau aftur, og Líney
beið útí bíl með Ásu og Brynju og fannst ekki leiðinlegt að
geta horft á sjónvarpið í bílnum þeirra, hehe. Ég ætlaði
aldrei að ná barninu aftur frá þeim Og svoo fórum við heim
til Alvildu og amma og Lilja frænka + krakkarnir komu
þangað í kaffi. Svo skyldi ég Líney eftir þar og fór
að REYNA finna mér einhver föt.. gekk ekki neitt vel
svosem. En ég náði nú samt að finna mér jakka,
NIKITA jakka sem kostaði ekki nema 12.900 (sem er nottla
ekki neitt) hahahaha Hann er bara flottur og
svo keypti ég mér ADIDAS skó, ekki veitti af að kaupa
sér skó Og eg keypti mér svo einn bol líka.
Ég keypti svo hillu handa Líney, með svona
mörgum hólfum því að hún á ekkert lítið dót barnið Heyrðu
svo er eitt.. ég er að fá íbúðina mína afhenta um
helgina díses kræst ég á eftir að pakka öllu niður og gera
ALLT og ég er ekkert að nenna því En ég fer bara í það
eftir helgi held ég. Ég ætla nefnilega á þrusudjamm á
laugardaginn með Berglindi og fleirum, það verður bara
gaaaaaaaaaaaaaaaman Ég ætla að mæta snemma inneftir og
gera mig að skvísu og svo byrja snemma bara að
djammmmma Við Begga eigum eftir að mála bæjinn
fjólubleikann sko Ég ætla svo með Líney til Ak á
sunnudaginn og gera eitthvað spennó. Vá hvað það er samt
eitthvað asnalegt að hafa ekki mömmu og pabba heima Eg er
vön að geta sett Líney í pössun í smá ef
mig langar að skreppa eitthvert en núna er ég bara
pikkföst heima hehehehe En það er samt bara fínt,
við erum búnar að vera rosa duglegar að bralla eitthvað
saman Núna er ég aftur orðin best, amman var orðin
aðeins of skemmtileg og mamman ekki jafn spennó Svo er
fiskidagurinn á Dalvík um næstu helgi, shiii hvað það
verður bara gaman Þá skelli ég mér með Líney yfir daginn
og fer svo ein um kvöldið ef ég fæ pössun. Ég fer
svo vestur með Líney þriðju helgina í ágúst, til Danna. Þau
þurfa víst að fá að hittast annað slagið. Fer svo kannski
til Rvk 3 daga eða eitthvað. Við Danni erum hætt saman,
hættum saman fyrir mánuði eða eitthvað og ég er svoo sátt
bara og hann líka, sem er bara gott mál 
En jæja, þetta er komið fínt.. nenni ekki
meir.
Kvittið ef þið nennið
Kv. Hanna panna.
»
29.07.2007 01:51:10 / hannastella
Aldrei..
Aldrei;
segja að þú ætlir að vera,
ef þig langar að
fara.
Aldrei; halda í
höndina mína, ef þú ætlar að
sleppa.
Aldrei; segjast
vera hér, ef þú ert það í
alvörunni ekki.
Aldrei; horfa í
augun mín, ef
það eina sem þú gerir er að ljúga.
Aldrei; segja að
ég sé eitthvað, ef
ég er það ekki.
Aldrei; segja "
ég elska þig", ef það eru bara orð.
Aldrei; tala um
tilfinningar, ef þær eru ekki
til staðar.
Aldrei; gera mig
glaða, ef þú
ætlar að særa mig.
Aldrei; vera
kyrr, efþú ætlar að
fara.
Love`s when . .
. . you miss him
even
before
he leav
es. When
you
could
listen
to
him
talk all
night
a
nd
never
get tired of
hearing his
vo
ice
When just the
sound of his
n
ame
sends chills
down your
spine
an
d you see his
smi
le
the
second
yo
u
close
yo
ur
eye
s
»
28.07.2007 05:42:02 / hannastella
»
23.07.2007 15:07:58 / hannastella
Hæhæ,
Ég er alveg ferlega löt
við þetta blogg En það hefur nú ýmislegt gerst síðan ég bloggaði
síðast.
Ég djammaði af mér
rassgatið fyrir viku síðan, föstudag + laugardag og það var
ógeðslega gaman!!!! Á föstudeginum fór ég til Lilju og Mæja kom
líka. Við gerðum okkur sætar og fínar og komum okkur í djammgírinn.
Svo mættu driverinn og einn annar gæji sem var greinilega búinn að
hella smá í sig áður en hann mætti á svæðið Svo
var ferðinni heitið til Dalvíkur, við komumst á
leiðarenda þrátt fyrir að þurfa að stoppa tvisvar á leiðinni..
hehe Við fórum svo á Bakaríið og það var rosa gaman og mikið af
fólki. Við ætluðum reyndar til Akureyrar en við ákváðum að vera
bara á Dalvík í staðinn. Þetta var rosa fínt kvöld.
Og svoooo á
laugardeginum fór ég til Mæju pæju og ég var alveg hrikalega þunn
og skemmtileg en Mæja hlustaði ekkert á tuðið í mér og gaf mér
eitthvað sull að drekka og Simmi gaf mér svo eitthvað dry sull..
held reyndar að það hafi komið mér í djammgírinn Við fórum svo á
Höllina, ég, Mæja, Simmi og Karen og það var ekkert stuð þar þannig
að við redduðum driver og skruppum til Dallas aftur, og það var
bara gaman 
Ég hitti hana Önnu
Sigrúnu MÍNA og það var bara fyndið móment. Ég ætlaði á klósettið
og þar var hún líka að bíða, og við horfðum á hvor aðra í
ábyggilega 15 sekúntur og þá byrjaði ballið... VIÐ ÖSKRUÐUM Í
MÍNÚTU EÐA EITTHVAÐ vorum einsog við hefðum ekki séð hvor aðra í
10 ár, hahahahaha Við misstum okkur á trúnó og spjalli alla
nóttina því að við höfðum HELLING að tala um. Mikið var gott að sjá
hana, vá Anna, þú bjargaðir kvöldinu og rúmlega það 
Svo eftir skemmtilegt
kvöld á Dalvík fórum við til Ólf aftur, ég fór heim til Karenar og
asnaðist til að fara á eitthvað þrekhjól og ég var farin að stynja
úr þreytu.. hahaha Enda leið mér ekki vel þegar ég vaknaði
daginn eftir, ég var með harðsperrur frá helvíti!
Ég sofnaði um átta
leitið eða eitthvað um morguninn og þurfti að mæta uppí Tjarnarborg
kl ellefu, fékk alveg tæplega þriggja tíma svefn!! En ég hristi
þreytuna af mér og vann í Tjarnarborg frá kl ellefu til tvö, það
var fínt.
Og svooooooo á
mánudagskvöldið bað mamma mig um að koma með sér og ömmu til Rvk á
þriðjudagsmorguninn.. eg ætlaði ekki að fara en ég gat ekki neitað
múttu þannig að ég pakkaði niður á no time og keyrði svo suður um
morguninn ég komst að því þegar ég var komin til Rvk að ég tók
varla nein föt með mér, ég er agaleg þegar ég er að fara eitthvert,
snýst bara í hringi útaf stressi og GLEYMI ÖLLU!! En þetta var fín
ferð þannig séð, þetta var engin heimsóknarferð þannig að það þýðir
ekkert fyrir einhvern að fara í fýlu Ég hafði engan tíma til að
gera neitt og var heldur ekki á bíl. Líney Mist var að vesenast með
liðinu bara og ég slappaði af, hahaha 
Svo á fimmtudaginn
fórum við í 100 ára afmæli til langömmu minnar, það var bara fínt..
hún er ótrúlegt kellingin. Ég vil samt helst ekkert verða svona
gömul takk!!!!
Svo á föstudaginn fórum
við öll út að borða á IndoKina og það var rosa fínt og geggjaður
matur þarna. Fórum svo öll heim til Kidda og fengum þvílíkt góða
afmælisköku sem Valdimar bakaði, hann er að læra bakarann og er
þvílíkur snilli Lauga átti semsagt afmæli á föstudaginn og Kiddi
á laugardaginn, vorum að halda uppá það. Svo fórum við heim til
Laugu og ég kom Líney í háttinn, svo kom Teitur með pakka handa
mér, hehe.. gaf mér 18 hálfs líters kók, ekki slæmt það svo var
ég beðin um að skutla Hrafnhildi og félögum niðrí bæ og svo þurfti
ég að skutla Laugu og ... heim líka.
Og svooooooo ætlaði ég
að fara sofa svo ég myndi halda haus daginn eftir en neiii, ég
endaði á MSN til kl hálf fimm um nóttina og vaknaði svo kl hálf
átta daginn eftir
Lögðum svo af stað
norður um tíu leitið... shiii hvað ég var þreytt!! Um kvöldið fór
ég svo í matarboð til Liju og Hrönn kom líka. Þetta var ekkert smá
flott hjá Lilju, hún hafði greinilega gefið sér tíma til að gera
þetta sem flottast Og maturinn var ÆÐI, Lilja þú ert snilldar
kokkur Svo gerðum við okkur sætar og fínar og Mæja pæja mætti
líka á svæðið..og ætluðum á Höllina. En ég gat ekki meira, fór heim
og steiiiiiiiiiiinsofnaði fyrir kl eitt og vaknaði svo eldhress
daginn eftir Svaf reyndar aðeins of fast hehe
En já, ég er ótrúlega
sátt þessa dagana Nýt þess í botn að vera til og vera mamma
Og ég ætla að halda áfram að vera sátt og njóta lífsins með
snúllunni minni 
En jæja, ég er hætt í
bili, hehe. Ef þið nenntuð að lesa þetta þá megið þið endilega
kvitta fyrir ykkur 
Bojj, kv. Hanna sem er
svo sáttttt 
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
Dagsetning
23. febrúar 2012
|